Strembin vika að baki...
Jæja þá er ein strembin vika að baki hjá mér...held að ég hafi ekki upplifað aðra eins viku áður...hehe
Það er eins og það þurfi alltaf að vera allt allt að gerast í einu, brálað álag í skólanum, uppgjör í vinnunni (bláa), brjálað frost og rafgeymirinn í bílnum mínum dó..arg garg
Þurfti að skila í þessari viku hópverkefni í markaðsfærði uppá 20%, verkefni í fjárhagsbókhaldi uppá 15% og skilaverkefni í stærðfræði. Þar sem maður er í háskólanámi með vinnu gefst enginn annar tími til læra en helgar, kvöld og nætur..er búin að eyða meiri tíma í skólanum þessa vikuna en heima hjá mér. Var upp í skóla síðustu helgi frá 11-21 báða dagana að gera markaðsfræðiverkefnið, mæti svo í tíma á mánudag klukkan fjögur og fer strax í fjárhagsbókhaldið eftir tímann og erum í því til fjögur um nóttina, mæti svo í vinnu níu morguninn eftir..hætti á hádegi og fer uppí skóla og er það til þrjú um nóttina, fer þá útí bíl í mesta frosti sem ég man eftir og hann rafmagnslaus...þannig að ég þurfti að hringja á taxa til að fá start, sem betur fer eru þeir með þá þjónustu segji ég nú samt.
Þurfti svo að sleppa tíma á miðvikudag til að vera í vinnunni því ég átti nóg eftir að bóka...svo þegar ég ætla heim er mín aftur rafmagnslaus...en ég á svo yndislega mömmu sem kom mér til bjargar og gaf mér start. Var svo uppí skóla til eitt á fimmtudagskvöldið að klára skiladæmin í stæ. sem voru þau síðustu á þessari önn þannig að núna er öll verkefnavinna búin sem er svo mikill léttir að þið trúið því ekki. Var svo að vinna á fös til sjö til að klára bláu og fór svo að láta skipta um rafgeymir í elsku bílnum mínum...:)
Helgin er svo búin að vera mjög fín hjá mér..Inga bauð okkur í mat til sín á fös.kvöldið, mín kom nú aðeins of seint því ég þurfti að fara með bílinn en það reddaðist...náðu stelpunum við matarborðið, það var bara kósý kvöld hjá okkur stelpnum, hoefðum á x-factor og rifumst um að halda á Sunnu Dís..hehe, held að það klingi nú aðeins hjá okkur öllum í kringum hana, enda ekki annað hægt...:)
Fór svo á heildsölu á laug.morguninn sem Linda uppí vinnu var búin að redda okkur á og keypti tvær jólagjafir...:) Var svo mætt uppí skóla um tvö þar sem ég hitti Hrönn, en við vorum að byrja að læra undir stærðfræðiprófið sem er 30. nóv, trúi því varla að þessi önn sé að verða búin...tíminn flýgur sko áfram. Tek svo prófí 5. des í fjárhagsbókhaldi og 8. des í markaðsfræði og er þá komin í mánaðarfrí...ohhhh hvað það verður yndislegt...
Ég hitti svo Örnu, Hönnu og Tinnu í gærkvöldi og ætluðum við að fá okkur smá í glas sem endaði náttla á því að ég, Arna og Tinna skelltum okkur í bæinn sem var bara mjög gaman...dönsuðum eins og maniacs...:) Binni elskan bjargaði okkur ekkert smá mikið, hann skutlaði okkur í bæinn og náði svo í okkur Örnu...en það snjóaði svo svakalega mikið frá miðnætti að það var allt á kafi þegar við vorum á leiðinni heim aðleigubílaröðin haggaðist ekki og bílar að koma á 5 mín fresti...enda voru víst sendir tveir strætóar í röðina í nótt til að fólk gæti hlýjað sér á meðan það væri að bíða eftir bíl...
Ég er svo búin að vera í algerri leti í dag...ekkert smá kósý..gott að hlaða batteríin fyrir næstu vikur sem verða strembnar í próflestri..
Jæja ætla að láta þetta duga í bili..er sko búin að vera "in fire" hehe
Mæjan
P.s. Birna og Rakel, þar sem það er ekki til stafræn myndavél á heimilinu mínu get ég ekki sett mynd af nýja tannskartinu mínu núna...aldrei að vita nema að ég láti einhvern taka mynd af mér til að sýna ykkur..er svo ánægð með þetta..hehe